Međ gat á hausnum ađ Tyrfa
Jæja þá er það ný færsla :)
en ég verð að fá kvittanir sko því ég nenni ekki að blogga hér ef engin lesur það skilurðu ;)
En já heldurðu að kallinn hafi ekki skellt sér norður um helgina síðustu, var sú ferð frekar skrautlega en sammt sem áður allvega dúndur skemmtilega að sjálfsögðu :)
Lagði af stað ásam 3 öðrum FH ingum á Prezzunni minni norður yfir heiðar um hádeigið á föstudegi, lentum um 5 og spiluðum kl hálf 7 móti ÍR, dagin eftir spiluðum við 2 leiki við Akureyri og Akureyri 2 sem var 2-3 flokkur KA og Þórs.. í því voru margir gamlir félagar, úr KA og gaman að sjá þeirra misfallegu fés aftur :) eftir þessa 2 leiki fór ég svo heim í heiðardalinn og þá byrjaði fjörið :D hehe
ég mætti Rollusafninu við presthvamm og Pabbi sagði mér að drífa mig að ná í hnakk sem og ég gerði og fór svo með safninu og öllu fólkinu síðasta spölinn í réttinna, voru margir orðnir vel kátir og hressir og stefnan sett á Lauginna um kveldið :) Fór ég heim og gaf lilla bro afmælisgjöf og fékk mér að eta og svo endaði þetta með því að við feðgar 2 fórum upp í brúnahlíð og hittum þar alla fjölskyldunna þar, var síðan haldið í lauginna þar sem margir gánamenn ásamt fylgdarliði komu saman og þá voru haldnir ruðningsleikar (sem er ný hefð frá árinnu áður) Eins og árið áður þá stóð mitt lið uppi sem sigurvegari eftir harða baráttu, og má meðal annars geta þess að ég fékk gat á hausinn þegar ég og Óli held ég að hann heiti, skölluðum saman, hann fékk aftur á móti stóran skurð á augabrúnina og þurfti að hætta leik.. eftir ruðningsleikana fór svo summt að liðinu í Heiðarbæ á réttarball svokallað, þar hitti ég Hilmar Kára (er mér sagt) hehe og fleiri góða aðila og var það bara mjög gaman :) daginn vaknaði ég rúmlega 9 og keyrði af stað til RVK, hrillilega leiðinlegt þótti mér sammt að missa af réttum, en FH-ingar voru svo stressaðir að komast heim að svo varð víst að vera..
En já annars er voða lítið að frétta svosem nema ég var að tyrfa áðan,, það tók strákan hér 10 mínótur að útskyra hvað tyrfa er þangað til ég áttaði mig á því hvað það í raun var,, þannig að þið sem vitið hvað er að TYRFA endilega setjið það í komment,, segja má að þetta sé gáta bara ;)
úff heyrðu man enganveginn fleiri sögur úr borginni núna,, en þær koma jafnhratt og kvittaninar hlaðast upp ;)
